,,Þessir fyrstu dagar hafa verið ótrúlega góðir,“ sagði Emil Hallfreðsson miðjumaður Íslands við íslenska fjölmiðla í Rússlandi í dag.
Afar vel fer um íslenska landsliðið við Svartahafið og hrósar Emil því.
,,KSÍ og þeir sem hafa verið að skipuleggja þetta fyrir okkur eiga mikið hrós skilið, það væri erfitt að þetta betra.“
Liðið heldur til Moskvu í dag en á laugardag er leikurinn stóri við Argentínu.
,,Fiðringurinn eykst með hverjum deginum, þegar maður kemur til Moskvu í kvöld kemur meira. Svo verður einbeiting á morgun og hinn.“
,,Við tókum góðar fund í gær og vorum búnir að taka einn fund um Argentínu á Íslandi, við þekkjum þessa leikmenn. Það var verið að fara yfir taktíska hluti.“