Kylian Mbappe, leikmaður franska landsliðsins, gat ekki klárað æfingu liðsins í dag vegna meiðsla.
Mbappe féll í grasið eftir viðskipti við varnarmanninn Adil Rami og var útlitið ekki bjart um tíma.
Farið var svo langt að tala um að HM væri í hættu fyrir framherjann sem væri gríðarlegt áfall fyrir Frakkland.
Mbappe hefur nú hins vegar staðfest það að hann sé í lagi og að meiðslin séu ekki alvarleg.
,,Það er í lagi með mig. Þetta var bara högg og skiptir engu máli en ég þakka kveðjurnar,“ skrifaði Mbappe á Twitter.