Það stefnir allt í það að Unai Emery þjálfari PSG verði rekinn eftir tíambilið.
Emery hefur gert liðið að frönskum meisturum og unnið deildarbikarinn í ár. Frammistaða liðsins í Meistaradeildinni verður líklega til þess að hann missi starfið.
Sagt er frá því í dag að Thomas Tuchel fyrrum þjálfari Dortmund fundi með PSG í vikunni.
Forráðamenn PSG hafa nú þegar hitt Tuchel og ætla að funda aftur með honum í vikunni.
Tuchel vann gott starf hjá Dortmund og kom liðinu aftur í fremstu röð eftir að Jurgen Klopp hafði misst flugið með liðið.