Það fóru fram tveir leikir í Reykjavíkurmótinu í kvöld og var boðið upp á ansi óvænt úrslit í seinni leiknum.
Leiknir Reykjavík spilaði fyrst gegn ÍR og hafði betur sannfærandi með fimm mörkum gegn engu.
Sævar Atli Magnússon skoraði fernu fyrir liðið í sigrinum og átti stórleik.
Fjölnir vann svo síðar Val í Egilshöll en Íslandsmeistararnir þurftu að sætta sig við 1-0 tap.
Valur byrjaði mótið á 2-1 sigri á Víkingum en lá svo gegn Fjölnismönnum í kvöld.