Genoa tók á móti Udinese í ítölsku Serie A í dag en leiknum lauk með 1-0 sigri gestanna.
Það var Valon Behrami sem skoraði eina mark leiksins á 62. mínútu og lokatölur því 1-0 fyrir gestina.
Emil Hallfreðsson byrjaði á bekknum hjá Udinese í dag en kom inná sem varamaður á 63. mínútu.
Udinese er í 8. sæti deildarinnar með 32 stig, tveimur stigum frá Evrópusæti.