Ágúst Freyr Hallson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Leikni.
Ágúst lék með HK í Inkasso-deildinni í fyrra og skoraði eitt mark. Markið var sigurmark HK gegn Leikni. Ágúst hefur alls leikið 74 leiki í meistaraflokki og skorað í þeim 12 mörk.
,,Við bjóðum Ágúst velkomin í Efra-Breiðholtið og óskum honum góðs gengis með Leikni,“ segir á heimasíðu Leiknis.
,,Ágúst getur leikið sinn fyrsta leik í kvöld þegar Leiknir tekur á móti Víking í Egilshöllinni klukkan 21:00.“