Stjórn UMF Víkings/Reynis og meirihluti stjórnar meistaraflokks kvenna hjá Víkingi Ólafsvík hafa í sameiningu ákveðið að senda ekki lið til keppni í meistaraflokk kvenna næsta sumar.
Víkingur Ó. hefur sent kvennalið til þátttöku á Íslandsmót í meistaraflokki kvenna síðan árið 2013 og hefur uppgangurinn í kvennaboltanum verið verulegur hér á Snæfellsnesinu.
,,Staðan nú er hinsvegar þannig að liðið okkar er ákaflega ungt og eftir samtöl milli stjórna og við fagaðila er það sameiginleg niðurstaða að betra sé að senda lið til keppni í 2. flokk kvenna þetta keppnistímabilið,“ segir í yfirlýsingu félagsins.
,,Þó svo að ekki verði meistaraflokkslið hér í Ólafsvík í sumar erum við hvergi af baki dottin hvað uppgang kvennaknattspyrnu varðar en teljum þessa ákvörðun nauðsynlega fyrir áframhaldandi uppbyggingu okkar unga liðs.“
,,Þá er stefnan sett á að mæta tvíefld til leiks með meistaraflokkslið sumarið 2019.“