Tímabilið hefur reynst Adam Lallana, miðjumanni Liverpool afar erfitt. Hann hefur verið mikið meiddur.
Lallana sem er 29 ára gamall meiddist á undirbúningstímabilinu.
Hann kom ekki til baka fyrr en í nóvember en hann hefur aðeins byrjað þrjá leiki og komið tíu sinnum inn sem varamaður.
Lallana meiddist á læri í lok mars og hefur verið í endurhæfingu síðan þá. Hann á sér veika von um að komast á HM í Rússlandi.
Til þess að reyna að flýta bata sínum er Lallana mættur til Suður-Afríku, þar hittir hann sérfræðinga sem reyna að hjálpa honum.