Anthony Martial, leikmaður Manchester United, má víst ekki fara frá félaginu fyrir minna en 100 milljónir punda.
Frá þessu er greint í dag en Martial hefur sjálfur greint frá því að hann vilji komast burt í sumarglugganum.
Frakkinn komst ekki á HM með sínum mönnum í Rússlandi eftir takmarkaðan spilatíma á síðustu leiktíð.
Samkvæmt fregnum dagsins er Martial fáanlegur fyrir 100 milljónir punda og ekki krónu minna.
United vill ekki selja leikmanninnn en bæði Chelsea og Tottenham hafa sýnt honum áhuga.