Neil Warnock, stjóri Cardiff, var bálreiður í gær eftir 5-1 tap sinna manna gegn Watford í ensku úrvalsdeildinni.
Warnock var ekki aðeins ósáttur með spilamennsku sinna manna heldur einnig frammistöðu dómarans Simon Hooper.
Warnock vildi fá vítaspyrnu er staðan var 1-0 fyrir Watford og skilur ekki hvað Hooper var að horfa á.
,,Það skilur þetta enginn. Svona ákvarðanir breyta leikjum,“ sagði Warnock reiður eftir leikinn.
,,Ég get ekki skilið af hverju hann dæmdi ekki. Þetta var augljós vítaspyrna. Það er engin afsökun fyrir því að fá á sig fimm mörk en svona hlutir breyta leikjum.“
,,Dómarinn er í frábærri stöðu svo ég skil þetta ekki. Ef þú getur ekki tekið svona ákvarðanir á þessu stigi þá ættirðu ekki að vera að dæma.“