Mesut Özil er enn mjög mikilvægur fyrir Arsenal þrátt fyrir takmarkaðan spilatíma undanfarnar vikur.
Þetta segir varnarmaður Arsenal, Sokratis Papastathopoulos en Özil er orðaður við brottför þessa dagana.
Unai Emery, stjóri Arsenal, hefur ekki viljað nota Özil mikið en hann fékk þó að byrja í 3-0 sigri á BATE í gær í Evrópudeildinni.
,,Hann spilaði mjög vel. Mesut er frábær leikmaður og þegar hann er heill þá er hann einn mikilvægasti leikmaður liðsins,“ sagði Sokratis.
,,Auðvitað, þegar hlutirnir eru ekki að ganga vel þá munu allir gagnrýna en við getum séð hvað Mesut hefur gert fyrir Arsenal síðustu ár.“
,,Allir leikmennirnir standa við bakið á honum og við þurfum góðan Mesut til að sækja því við vitum hversu mikilvægur hann er.“
,,Hann var veikur og lenti í smá vandræðum. Hann sneri aftur á æfingar og staða hans var sú sama og þegar ég meiddist: ég spilaði ekki alla leiki í byrjunarliðinu.“