Stuðningsmenn Manchester United hafa fengið góð tíðindi en Anthony Martial og Jesse Lingard eru að ná bata.
Báðir meiddust gegn PSG í síðustu viku og ekki var talið að þeir yrðu leikfærir gegn Liverpool um helgina.
Bati þeirra hefur hins vegar verið meiri og betri en búist var við og er nánast öruggt að Martial verði leikfær.
,,Ég vona og held að Anthony verði klár,“ sagði Ole Gunnar Solskjær stjóri liðsins. ,,Ég vona að Jesse verði klár en meiðsli þeirra voru þó ekki eins.“
,,Kannski erum við með of miklar væntingar, Anthony á möguleika. Við vonum að Jesse geti spilað.“
United tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni klukkan 14:05 á sunnudag.