Varnarmaðurinn Aymeric Laporte hefur skrifað undir nýjan samning við lið Manchester City á Englandi.
Þetta var staðfest í dag en þessi 24 ára gamli leikmaður gerði samning við ensku meistarana til ársins 2025.
Laporte kom til City í janúar á síðasta ári en hann hafði gert góða hluti með Athletic Bilbao á Spáni.
Síðan þá hefur Frakkinn staðið sig með prýði á Englandi og er fastamaður í liði e Guardiola.
Laporte er því samningsbundinn næstu sex árin og er ekki á förum frá Etihad á næstunni.