Jurgen Klopp, stjóri Liverpool ber virðingu fyrir Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United. Klopp heimsækir Solskjær á sunnudag.
Síðasti leikur Untied undir stjórn Jose Mourinho var gegn Klopp og félögum, hann var rekinn eftir leikinn og Solskjær tók við.
Leikur United hefur breyst mikið síðan þá og liðið er á flugi fyrir leikinn á sunnudag.
,,Þetta er eflaust besta tölfræði sem einhver stjóri hefur haft þegar hann kemur svona inn,“ sagði Klopp.
,,Þegar þú skoðar þessa tíu leiki, þá eru þetta sigrar, árangur hans er góður. Þeir hafa náð nokkrum góðum úrslitum.“
,,Ég hef alltaf sagt það að þjálfarar eru ekki töframenn, gæðin í hóp United eru góð, að var öllum ljóst. Hann kom inn og hefur sagt réttu hlutina og gert það rétta á æfingasvæðinu.“
,,Hann hafði reynslu frá Noregi, sumir halda að það sé ekki eins, það sé ekki alvöru þjálfun. Þú þarft alltaf að gera sömu hlutina í þjálfun, sama hvaða gæði leikmenn hafa.“