Guðjón Þórðarson, „høvuðsvenjari“ NSÍ Runavík í Færeyjum hefur fengið til sín áhugaverðan aðstoðarmann. Sjálfur Jens Martin Knudsen verður aðstoðarþjálfari hans. „Høvuðsvenjari“ er þjálfari en færeyskan er skemmtilegt mál.
Knudsen er Íslendingum vel kunnugur en hann var markvörður Leifturs um langt skeið. Þessi litríki Færeyingur mun aðstoða Guðjón.
Guðjón er í sínu fyrsta starfi í fótboltanum eftir sex ára fjarveru, hann tók við NSÍ í vetur.
NSÍ er eitt stærsta lið Færeyja og ætti að berjast á toppnum við HB þar sem Heimir Guðjónsson er þjálfari.
Þjálfarateymið:
Gudjón Thordarson, høvuðsvenjari
Jens Martin Knudsen
Trygvi Mortensen
Poul Helgi Jacobsen
Rúni Rasmussen
Andras Gango, málmansvenjari