Aron Einar Gunnarsson er á varamannabekk Cardiff í kvöld sem spilar við Watford í ensku úrvalsdeildinni.
Cardiff hefur unnið síðustu tvo deildarleiki sína en mætir góðu Watford liði sem situr í áttunda sæti deildarinnar.
Hér má sjá byrjunarlið kvöldsins.
Cardiff: Etheridge, Morrison, Manga, Bamba, Paterson, Bacuna, Ralls, Bennett, Arter, Murphy, Niasse.
Watford: Foster, Janmaat, Mariappa, Cathcart, Masina, Doucoure, Capoue, Hughes, Pereyra, Deeney, Deulofeu.