Alexandre Lacazette, leikmaður Arsenal, mun missa af báðum leikjum liðsins gegn Rennes í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar.
Þetta var staðfest í dag en Lacazette missti af leik gegn BATE Borisov í gær sem vannst 3-0.
Arsenal tryggði sér þar með sæti í næstu umferð en Lacazette fékk rautt spjald í fyrri leik liðanna í Hvíta-Rússlandi.
Bann hans hefur nú verið lengt en UEFA hefur ákveðið að bæta við tveimur leikjum sem er áfall fyrir Arsenal.
Lacazette mun missa af bæði heima og útileiknum gegn Rennes sem eru ekki góðar fréttir fyrir þá ensku.