,,Ég valdi ekki peningana,“ sagði Marouane Fellaini miðjumaður Shandong Luneng í Kína, hann skrifaði undir hjá félaginu á dögunum.
Fellaini var keyptur til Kína á dögunum og fær miklu betri laun, hann fær 360 þúsund pund á viku.
Fellaini var hjá Manchester United en fékk lítið að spila hjá Ole Gunnar Solskjær, hann ákvað því að elta aurana til Kína en viðurkennir það ekki.
,,Ég sé þetta sem áskorun, þetta félag hefur allt. Þið ættuð að sjá hvernig aðstæður eru hjá okkur, ég elska að vera hérna.“
,,Ég fór til Shandong Luneng af því að þeir höfðu haft áhuga í mörg ár, ég þurfti nýja áskorun. Nýtt líf.“