Það kom aldrei til greina fyrir Andreas Christensen að yfirgefa Chelsea eftir að hafa rætt við félagið í janúar.
Christensen hefur ekki fengið mörg tækifæri á leiktíðinni en hefur undanfarið verið að fá meiri spilatíma.
Hann var orðaður við brottför í janúar en Chelsea sannfærði hann um að hann væri enn mikilvægur hlekkur.
,,Á þessum tíma voru tveir augljósir byrjunarliðsmenn og svo var það ég. Ég verð bara að sýna það að ég geti tekið tækifærin,“ sagði Christensen.
,,Það var mikil talað um skipti í janúar en það sást strax að félagið sá mig sem einhvern sem myndi spila.“
,,Auðvitað var það gaman að heyra svo ég held áfram að sanna mig. Ég hef verið góður í síðustu leiktíð og vonandi verða tækifærin fleiri.“
,Ég efaðist mikið en um leið og félagið sannfærði mig um að þeir þyrftu á mér að halda var þetta ekki erfitt.“