Aaron Ramsey hefur samið við Juventus á Ítalíu en hann gengur í raðir liðsins í sumar.
Ramsey var fenginn til Arsenal fyrir 11 árum síðan en Arsene Wenger var þá við stjórnvölin.
Wenger hefur nú tjáð sig um þessi skipti en hann er mjög hrifinn af miðjumanninum sem leikmanni.
,,Þetta er mikill missir fyrir Arsenal. Ég verð þó að segja að þetta sé athyglisvert skref fyrir Ramsey,“ sagði Wenger.
,,Hann er leikmaður sem er frábær fram á við. Hans helstu gæði eru að halda boltanum og og hann tekur mjög skemmtileg hlaup frá miðjunni.“
,,Þið finnið ekki marga leikmenn sem taka svona hlaup. Þetta verður áhugaverður fengur fyrir Juventus.“