Anfield, heimavöllur Liverpool á Englandi, er ‘versti’ heimavöllur sem Arjen Robben hefur spilað á.
Robben greinir sjálfur frá þessu fyrir leik gegn einmitt Liverpool í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Robben þekkir það aðeins að spila á Anfield og spilaði með Chelsea er Luis Garcia skoraði ‘draugamarkið’ fræga í undanúrslitum Meistaradeildarinnar árið 2005.
Hann mætti svo aftur á Anfield tveimur árum seinna þar sem Pepe Reina varði frá honum vítaspyrnu.
,,Ef þú spyrð mig út í versta völlinn fyrir mér þá er það örugglega Liverpool,“ sagði Robben.
,,Það verður að vera einn völlur. Þú átt alltaf þinn uppáhalds mótherja og það verður að vera einn neikvæður.“