Jesse Lingard, leikmaður Manchester United, heimsótti heimabæ sinn Warrington í dag.
Lingard fékk smá frítíma í dag en hann er að glíma við meiðsli og verður frá keppni næstu þrjár vikurnar.
Hann verður því ekki með United á mánudaginn er liðið mætir Chelsea í stórleik í enska bikarnum.
Lingard er 26 ára gamall sóknarmaður og gladdi börnin í heimabæ sínum þar sem veðrið var frábært.
Lingard keypti ís handa öllum sem voru á svæðinu og tók myndir og gaf aðdáendum eiginhandaráritanir.
Lingard heimsótti Saint Margaret skólann og voru börnin að vonum í skýjunum þegar hetjan þeirra mætti á svæðið.