Það er engin spurning um það að hinn ungi Kylian Mbappe sé mjög hæfileikaríkur leikmaður.
Mbappe spilar með liði Paris Saint-Germain í Frakklandi og er einn mikilvægasti leikmaður liðsins.
Hann elskar að skora mörk og gerir mikið af því og komst til að mynda á blað gegn Manchester United í vikunni.
PSG virðist þó aðeins hafa farið yfir strikið fyrir viðurkenninguna sem Mbappe fékk í dag.
Þar fékk Mbappe sérstakan bol og viðurkenningu fyrir að hafa skorað 100 mörk á æfingum.
Að telja það er ekki eitthvað sem þekkst í knattspyrnuheiminum en Mbappe virkar þó út fyrir að vera í skýjunum.