Vilhjálmur Alvar Þórarinsson dæmir leik Chelsea og Monaco í 16 liða úrslitum Unglingadeildar UEFA.
Honum til aðstoðar verða þeir Gylfi Már Sigurðsson og Gylfi Tryggvason.
Vilhjámur hefur verið að koma sér í hóp á meðal fremstu dómara landsins á síðustu árum og fær þetta skemmtilega verkefni.
Leikurinn fer fram á Englandi 19. febrúar.