Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid á Spáni, hefur gert nýjan þriggja ára samning við félagið.
Þetta var staðfest í dag en Simeone hefði orðið samningslaus hjá félaginu næsta sumar.
Samkvæmt fregnum er Simeone nú launahæsti starfsmaður Atletico og á hærri launum en Antoine Griezmann, stjarna liðsins.
Simeone er í guðatölu í Madríd en hann hefur unnið stjö titla með félaginu á sjö árum.
Hann erm eð 61 prósent sigurhlutfall hjá félaginu og gæti haldið uppteknum hætti til ársins 2022.