Josep Maria Bartomeu, forseti Barcelona, hefur staðfest það að hann hafi verið í sambandi við Neymar.
Neymar er fyrrum leikmaður spænska liðsins en hann samdi við Paris Saint-Germain árið 2017.
Hann er þó reglulega orðaður við endurkomu til Spánar og var Bartomeu spurður út í þann möguleika.
,,Ég hef rætt við Neymar og við höfum séð hvorn annan nokkrum sinnum en hans fólk hefur aldrei sagt að hann vilji snúa aftur,“ sagði Bartomeu.
,,Enginn hefur hringt í okkur vegna þess. Neymar er samningsbundinn PSG og er á öðru tímabili sínu þar.“
,,Það er því mjög erfitt að ímynda sér að þeir vilji selja. Við vildum það ekki.“