Keylor Navas, markvörður Real Madrid, viðurkennir að hann sé ekki ánægður hjá félaginu.
Navas fær ekki mikið að spila þessa dagana eftir komu Thibaut Courtois frá Chelsea í sumar.
Miðað við ummæli Navas í gær þá er aldrei að vita að hann færi sig um set í sumar.
,,Staðan mín hjá félaginu hefur breyst mikið, það er ekki auðvelt að spila með mánaðar millibili,“ sagði Navas.
,,Þú verður að halda þér heilum andlega líka en ég geri þetta fyrir fjölskylduna og þá sem hafa trú á mér.“
,,Ég er ánægður þegar ég fæ tækifærið og gef allt í sölurnar. Þú verður að sýna það að þú sért tilbúinn.„