KR 5-3 Valur
0-1 Garðar Gunnlaugsson (55′)
1-1 Finnur Tómas Pálmason (57′)
1-2 Garðar Gunnlaugsson (62′)
1-3 Birkir Már Sævarsson (65′)
2-3 Aron Bjarki Jósepsson (72′)
3-3 Pablo Punyed (74′)
4-3 Tobias Thomsen (75′)
5-3 Kristinn Jónsson (81′)
Það fór fram ótrúlegur leikur í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins er KR og Valur áttust við í gær. Valsmenn byrjuðu leik gærkvöldsins af krafti og komust í 3-1 en Garðar Bergmann Gunnlaugsson gerði tvö af þeim mörkum.
Fjögur mörk voru skoruð á aðeins tíu mínútum en Valur komst yfir á 55. mínútu og var staðan orðin 3-1 tíu mínútum síðar.
Fjörið var svo aldeilis ekki búið en á næstu tíu mínútum fengu áhorfendur önnur þrjú mörk.
Það voru allt mörk KR sem allt í einu komst yfir í 4-3. Sex mínútum eftir fjórða mark KR þá bætti Kristinn Jónsson við fimmta markinu og lokastaðan 5-3!
KR mætir því Fylki í úrslitum mótsins en Fylkir sló Fjölni úr leik fyrr í gær.
Mörkin úr leiknum eru hér að neðan.