Willem II fór í undanúrslit í hollenska bikarnum í gær þegar liði vann 3-2 sigur á Twente á útivelli.
Það var Íslendingurinn efnilegi, Kristófer Ingi Kristinsson sem reyndist hetja liðsins.
Kristófer er aðeins 19 ára gamall en hann kom til félagsins árið 2016 frá Stjörnunni.
Kristófer Ingi hefur verið að fá talsvert af tækifærum með Willem II og nýtti það vel í gær.
Kristófer lék síðustu fimmtán mínútur leiksins en hann skoraði sigurmark leiksina á 87 mínútu.
Kristófer er í U21 árs landsliði Íslands en markið hans má sjá hér að neðan.
⚽️ | Is dit de beslissing in de wedstrijd? Willem II-speler Kristófer Kristinsson kopt de 2-3 binnen voor de Tilburgers met nog vijf minuten op de klok.#twewil #TOTOKNVBBekerhttps://t.co/hvQ8sjavj8 pic.twitter.com/tk7nazhnnQ
— FOX Sports (@FOXSportsnl) January 23, 2019