Ákveðið hefur verið að U21 landslið karla mæti Tékklandi í vináttulandsleik á Spáni þann 22. mars næstkomandi.
Um er að ræða fyrsta verkefni U21 karla undir stjórn nýs þjálfarateymis liðsins, þeirra Arnars Þórs Viðarssonar og Eiðs Smára Guðjohnsen.
Alls verða 20 leikmenn valdir í hópinn, sem kemur saman til æfinga í Pinatar á Spáni þann 18. mars.
Arnar Þór og Eiður Smári voru ráðnir til starfa á dögunum en báðir erun reyndir landsliðsmenn.
Arnar Þór hefur starfað í Belgíu síðustu ár en um fyrsta starf Eiðs Smára er að ræða.