Arnór Smárason hefur framengt samning sinn við Lilleström í Noregi en hann lék með félaginu á síðustu leiktíð.
Arnór varð að hetju hjá liðinu en Arnór skoraði sjö mörk í 13 deildarleikjum.
Arnór hafði tilboð frá nokkrum liðum en þessi þrítugi leikmaður hefur skrifað undir nýjan samning.
Arnór hefur verið í atvinnumennsku í 14 ár en hann gekk í raðir Heerenveen í Hollandi þegar hann var 16 ára gamall.
Arnór hefur spilað í Hollandi, Danmörku, Svíþjóð og nú Noregi en hann hefur spilað 23 leiki.
✍️?? #SmáraBack pic.twitter.com/NPtrZoT1oC
— Lillestrøm SK (@LillestromSK) January 23, 2019