Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, hefur verið frábær á þessu tímabili líkt og á því síðasta.
Salah er einn allra mikilvægasti leikmaður Liverpool en liðið treystir mikið á hans mörk.
Nú er Egyptinn í umræðunni eftir undarlegt tíst sem hann lét inn á Twitter-síðu sína í dag.
Fólk reynir að átta sig á því hvað Salah er að segja en hann ætlar sér einhverja stóra hluti árið 2019
Hann ætlar að koma sér í einhvern veginn samband á þessu ári en annars er mjög erfitt að skilja hvað hann á við.
Dæmi nú hver fyrir sig!
2019 Resolution: Time to get in touch, for real.
— Mohamed Salah (@MoSalah) 22 January 2019