John Aldridge, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að Jurgen Klopp gæti losað sig við þrjá eða fjóra leikmenn í sumar.
Liverpool hefur gert frábæra hluti á þessu tímabili og situr í efsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.
Það eru þó nokkrir leikmenn í leikmannahópnum sem fá lítið sem ekkert að spila þessa dagana.
Aldridge er ánægður með það sem er í gangi en Klopp hefur nú þegar losað sig við fjölmarga leikmenn.
,,Jurgen Klopp gæti leitast eftir því að koma þremur eða fjórum leikmönnum burt í sumar,“ sagði Aldridge.
,,Annars er starfið hans orðið mun auðveldara vegna vinnunnar sem hann og félagið hafa lagt í verkefnið síðustu ár.“
Talað er um að þeir Alberto Moreno, Daniel Sturridge og Adam Lallana gætu verið á förum frá Anfield.