Emiliano Sala, framherji Cardiff City, er týndur þessa stundina en hann var í flugvél sem óttast að hafi hrapað í gær.
Flugumferðarstjórar tóku eftir því í gær að vélin hafi allt í einu horfið af radar og er útlit fyrir að hún hafi hrapað til jarðar.
Leit stendur yfir þessa stundina af Sala og flugmanninum en þeir voru aðeins tveir um borð.
Nú rétt í þessu er greint frá því að Sala hafi haft miklar áhyggjur af fluginu og flugvélinni sem hann átti að ferðast í.
Franski miðillinn 20 minutes greinir frá því að Sala hafi rætt við Nicolas Pallois, fyrrum liðsfélaga sinn og tjáð honum að hann væri áhyggjufullur.
Flugvélin sem átti að skila Sala til Wales var afar lítil en hún var í eigu Cardiff.