Dele Alli, leikmaður Tottenham, mun ekki spila fyrir liðið fyrr en í mars vegna meiðsla.
Þessi 22 ára gamli leikmaður meiddist á dögunum er Tottenham mætti Fulham í ensku deildinni.
Hann er að glíma við meiðsli aftan í læri og verður ekki leikfær næstu sex vikurnar.
Það er mikið áfall fyrir Tottenham en Harry Kane er einnig meiddur og verður lengi frá.
Þeir munu báðir missa af leikjum liðsins gegn Dortmund í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Einnig verða þeir fjarverandi er Tottenham mætir Chelsea á Stamford Bridge í deildarbikarnum.