Barcelona hefur fengið til sín miðjumanninn Kevin-Prince Boateng en þetta var staðfest í kvöld.
Boateng var óvænt orðaður við Barcelona fyrr í dag en hann var á mála hjá Sassuolo á Ítalíu.
Barcelona vildi fá Boateng á láni út tímabilið og getur svo keypt hann fyrir 7 milljónir punda næsta sumar.
Boateng þekkir ágætlega til Spánar en hann lék þar með Las Palmas í eitt tímabil og gerði vel.
Hann hefur komið víða við á ferlinum og má nefna lið eins og Dortmund, Tottenham og AC Milan.
Transfer news… pic.twitter.com/hNYrKR9nL1
— FC Barcelona (@FCBarcelona) 21 January 2019