Það eru einhverjir sem ættu að muna eftir bakverðinum Pascal Chimbonda sem lék með Tottenham á sínum tíma.
Chimbonda hefur komið víða við undanfarin ár en hann spilaði með Tottenham frá 2006 til 2008 og svo aftur árið 2009.
Hann spilaði síðar fyrir lið á borð við Blackburn, Queens Park Rangers, Doncaster Rovers og mörgum til viðbótar.
Hann er 39 ára gamall í dag og hefur gert samning við lið Ashton Town sem spilar í níundu efstu deild á Englandi.
Chimbonda er ekkert unglamb lengur en hann er 39 ára gamall og verður fertugur í næsta mánuði.
Hann var án félags frá 2015 til 2017 en spilaði síðast fyrir Washington sem er einnig í neðri deildum Englands.
Chimbonda var eitt sinn franskur landsliðsmaður en hann lék þó aðeins einn landsleik sem kom árið 2006.