Arsenal er að gera stór mistök með því að leyfa miðjumanninum Aaron Ramsey að yfirgefa félagið.
Þetta segir Jack Collison, fyrrum liðsfélagi Ramsey í welska landsliðinu en Ramsey er á leið til Ítalíu.
Hann fer frítt til Juventus næsta sumar en Arsenal ákvað að framlengja samning hans ekki.
,,Hann náði frábærum árangri á Englandi og kannski líður honum eins og hann þurfi á nýrri áskorun að halda,“ sagði Collison.
,,Það verður erfitt því Juventus er gott lið. Þeir munu alltaf berjast um titla, þeir eru alltaf við toppinn í deildinni.“
,,Eru þetta mistök hjá Arsenal að leyfa honum að fara? Já, það er svo einfalt, já.“