Jakup Thomsen hefur gert samning við FH á nýjan leik eftir að hafa leikið með liðinu á síðustu leiktíð.
Thomsen kom til FH frá FC Midtjylland síðasta sumar og tókst að skora fjögur mörk í níu leikjum.
Hann gerði lánssamning við FH og hefur nú framlengt þann samning út sumarið.
Thomsen er 21 árs gamall sóknarmaður og á að baki einn landsleik fyrir Færeyjar.
Hann hefur enn ekki fengið leik hjá Midtjylland en hefur leikið annars staðar á láni síðustu þrjú ár.