Ole Gunnar Solskjær er eins stjóri og Sir Alex Ferguson segir miðjumaðurinn Paul Pogba.
Solskjær hefur stýrt United í undanförnum sex leikjum en hann tók við af Jose Mourinho í desember.
Solskjær vann undir Sir Alex hjá United og samkvæmt Pogba vinnur hann alveg eins sem þjálfari.
,,Þetta er eins og heima fyrir hann. Hann veit það. Það er eins og ekkert hafi breyst, hann kom aftur í tíma Ferguson,“ sagði Pogba.
,,Æfingarnar, hvernig við notum boltann, þetta er allt eins og það var áður.“