Steven Caulker, fyrrum leikmaður Tottenham og Liverpool, hefur skrifað undir samning við lið Alanyaspor í Tyrklandi.
Þetta var staðfest í kvöld en Caulker gerir samning við félagið út tímabilið.
Caulker er nafn sem margir kannast við en hann vakti athygli með Cardiff á sínum tíma og sóðar Queens Park Rangers.
Caulker var lánaður til Liverpool árið 2016 en spilaði aðeins þrjá leiki í láni hjá félaginu.
Hann spilaði sinn fyrsta enska landsleik árið 2012 og skoraði einmitt í þeim leik.
Caulker spilaði síðast með Dundee í Skotlandi á síðasta ári en stoppaði þar í aðeins nokkra mánuði.