Harry Kane, leikmaður Tottenham, mun ekki spila þar til í mars en hann er nú að glíma við meiðsli.
Kane skaddaði libönd í ökkla um helgina er Tottenham tapaði 1-0 geg Manchester United.
Kane er nú búinn að fara í skoðun og hefur Tottenham staðfest að hann verði frá í dágóðan tíma.
Þetta eru slæmar fréttir fyrir liðið sem er að berjast um Meistaradeildarsæti þegar 22 umferðir eru búnar.
Kane hefur skorað 14 deildarmörk á þessu tímabili en verður nú ekki með í næstu leikjum.