Arsenal er að skoða þann möguleika að fá James Rodriguez til félagsins í þessum mánuði.
The Daily Mail fullyrðir það í kvöld að Arsenal sé að íhuga að reyna að fá James í láni út leiktíðina.
Miðjumaðurinn er í láni hjá Bayern Munchen frá Real Madrid en er ekki fastamaður á Allianz Arena.
James gerði tveggja ára lánssamning við Bayern og á félagið aðeins eftir að borga þrjár milljónir punda af 11,5.
Mail segir að Arsenal vilji taka við lánssamningnum og er reiðubúið að greiða Real síðustu þrjár milljónirnar.
Ef ekki þá má Bayern kaupa James fyrir 39,5 milljónir punda í sumar sem verður að teljast ólíklegt.