Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United, hefur valið sinn leikmann ársins hjá félaginu.
Cantona var ekki hrifinn af byrjun tímabilsins er Jose Mourinho var við stjórnvölin á Old Trafford.
Ole Gunnar Solskjær er nú stjóri liðsins og hefur spilamennskan lagast mikið á undanförnum vikum.
,,Áður en Ole kom inn þá var enginn leikmaður ársins að mínu mati. Þeir voru ekki að njóta sín,“ sagði Cantona.
,,Eftir komu hans þá vilja allir fá boltann, allir hreyfa sig og eru að njóta sín og vilja skora – þeir eru ánægðir.“
,,Paul Pogba er frábær núna. Ole hefur fundið réttu stöðuna hans. Hann er með frábæra sjón og getur gefið boltann. Hann getur skorað, lagt upp, skipulagt leikinn og varist.“
,,Hann skipuleggur leikinn og alltaf þegar hann er í boltanum er það hættulegt – allt getur gerst.“