Bæði Chelsea og Malmö hafa verið ákærð af UEFA eftir atvik sem kom upp á fimmtudaginn.
Þessi tvö lið áttust við í Evrópudeildinni en Chelsea fagnaði sigri að lokum með tveimur mörkum gegn einu.
Chelsea er ákært fyrir hegðun stuðningsmanna sem ákváðu að hlaupa inn á völlinn í sigrinum.
Malmö fær ákæru fyrir svipað mál en stuðningsmenn liðsins kveiktu í flugeldum í stúkunni og köstuðu smáhlutum inn á völlinn.
Einn stuðningsmaður ákvað að hlaupa að stjörnu Chelsea, Eden Hazard og bað hann um treyjuna.
Hazard tók nokkuð vel í ástríðu stuðningsmannsins og ákvað að láta hann fá treyjuna.
Myndir af því má sjá hér.