Anthony Martial verður að öllum líkindum líkindum í byrjunarliði Manchester United í kvöld er liðið mætir PSG í Meistardeild Evrópu. Um er að ræð fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum.
Martial hefur eins og svo margir aðrir sprungið út undir stjórn Ole Gunnar Solskjær. Aukið frjálsræði hentar leikmönnum eins og Martial.
,,Við erum með stjóra með aðrar áætlanir og við reynum að fylgja því,“ sagði Martial en United hefur unnið tíu af ellefu leikjum sínum undir stjórn Solskjær.
PSG er að glíma við meiðsli en NEymar og Edinson Cavani eru á meðal þeira sem eru fjarverandi.
Líkleg byrjunarlið eru hér að neðan.
Manchester United: De Gea, Young, Lindelof, Bailly, Shaw; Matic, Herrera, Pogba; Lingard, Rashford, Martial
PSG: Buffon, Alves, Kimpembe, Silva, Bernat; Paredes, Marquinhos, Verratti; Di Maria, Mbappe, Draxler