Það hefði verið auðvelt fyrir Daniel Levy, eiganda Tottenham, að reka Mauricio Pochettino frá félaginu eftir hans fyrsta tímabil.
Pochettino var ráðinn stjóri Tottenham árið 2014 en gengi liðsins var ekki frábært á hans fyrstu leiktíð.
Steffen Freund, fyrrum leikmaður Tottenham, segir að Levy hafi gert mjög vel með að halda sig við Argentínumanninn.
,,Hann hefði auðveldlega getað rekið hann en Daniel Levy fattaði það að hann þyrfti að halda sig við Mauricio,“ sagði Freund.
,,Það var rétt ákvörðun og eitthvað jákvætt sem beinist að mér, Andre [Villas-Boas], Tim [Sherwood] og mér.“
,,Það voru mikil læti í kringum félagið á þessum tíma og stressið var mikið. Fólk varð reitt ef við unnum ekki heimaleiki.“
,,Kannski fattaði Daniel það að þetta myndi aldrei breytast ef hann myndi ekki gefa þjálfaranum tíma.“