Aaron Ramsey, leikmaður Arsenal, hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Juventus á Ítalíu.
David Ornstein, blaðamaður BBC, staðfesti þessar fregnir í kvöld en hann er mjög áreiðanlegur.
Ramsey verður launahæsti Breti sögunnar en hann mun fá yfir 400 þúsund pun á viku hjá Juventus.
Ramsey hefur lengi verið á mála hjá Arsenal en hann gengur frítt í raðir ítalska stórliðsins.
Hann spilaði með Arsenal í 11 ár og hefur lengi verið mikilvægur hlekkur af liðinu. Það var þó ákveðið að semja ekki við hann á ný.