Manchester City er aftur komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar, liðið átti ekki í neinum vandræðum með Chelsea þegar liðin mættust í dag. City gaf tóninn í upphafi leiks og Chelsea tókst aldrei að ná sér á strík, allt líf var barið úr liðinu.
Raheem Sterling kom City yfir á fjórðu mínútu og markavélin, Kun Aguero kom City í 2-0 eftir þrettán mínútur. Ilkay Gundogan kom City svo í 3-0 þegar tæpar tuttugu mínútur voru liðnar af leiknum, algjör niðurlæging.
Kun Aguero skoraði annað mark sitt og fjórða mark leiksns þegar 25 mínútur voru liðnar. 4-0 var staðan í hálfleik. Aguero fullkomnaði svo þrennu sína í síðari hálfleik og kom City í 5-0 áður en Sterling skoraði sitt annað mark og sjötta mark liðsins.
Enskir miðlar telja að Maurizio Sarri, stjóri félagsins gæti misst starfið sitt. Allt er í steik hjá Chelsea.
Fréttamaður Sky Sports, spurði Sarri eftir tapið um það hvort hann óttaðist að verða rekinn.
,,Þið verðið að spyrja félagið að því,“ sagði Sarri.