Cristiano Ronaldo reimaði á sig markaskóna þegar Juventus heimsótti Sassuolo í Seriu A á Ítalíu í kvöld.
Juventus komst yfir í fyrri hálfleik þegar nautið á miðjunni, Sami Khedira kom boltanum í netið.
Það var svo Cristiano Ronaldo sem kom Jventus í 2-0 eftir stoðsendingu frá Miralem Pjanic. Það var svo Emre Can sem skoraði þriðja og síðasta mark liðsins.
Ronaldo er á sínu fyrsta tímabili með Juventus en liðið hefur ellefa stiga forystu á toppi deildarinnar.